Félag áhugamanna um heimspeki efnir til málþings um skoska heimspekinginn David Hume laugardaginn 26. nóvember, kl. 13 í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, 4. hæð.
Erindi munu flytja:
Henry Alexander Henryson:
„Að sætta heimspeki og almenna skynsemi: Hume um augnapot, óendanleika og efnislegan veruleika“
Sveinn Eldon:
„Úr engu er ekkert komið“
Lýsing: Sveinn mun velta fyrir sér umfjöllun Hume um staðhæfinguna að allt eigi sér orsök í A Treatise of Human Nature (Book I, Part III, Section II).
Emma Björg Eyjólfsdóttir:
„Hið góða og hið illa í annarri rannsókn Humes“
Lýsing: Í annarri rannsókn sinni virðist Hume leggja að jöfnu hið góða og hið ánægjulega og hið slæma og hið sársaukafulla. Í þessu erindi mun Emma kanna hvers eðlis sambandið á milli þessara hugtaka er, hvort Hume skilur þau sem samheiti eða hvort hann telur í raun og veru hið ánægjulega vera gott og hið sársaukafulla vera slæmt.
Mikael Marlies Karlsson:
„Rök, skynsemi og sannfæring í kenningum Davids Hume“
Að þeim loknum fara fram almennar umræður.
Að málþinginu loknu verður haldinn árlegur aðalfundur Félags áhugamanna um heimspeki (væntanlega kl. 15). Þar fer m.a. fram kosning í stjórn og önnur embætti FÁH og eru allir sem áhuga hafa á að bjóða sig fram til þeirra beðnir um að láta vita. Ekki er þó neinn lokafrestur til þess að skila inn framboði.
Dagskrá aðalfundar er skv. lögum FÁH svohljóðandi:
7.gr. Aðalfundur skal haldinn ár hvert, og skal dagskrá vera þessi:
- Skýrsla stjórnar.
- Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
- Önnur mál.
- Kosning stjórnarmanna sbr. 5.gr.
- Kosning tveggja endurskoðenda.
- Umræður um næsta starfsár.
Formaður stjórnar fundinum, eða kjörinn fundarstjóri í fjarveru hans.
Aðalfund skal boða eins og félagsfund sbr. 6.gr. Er hann lögmætur, ef löglega er til hans boðað.
Sjá nánar um lög félagsins á heimasíðu FÁH.