Heimspeki í leik- og grunnskólum: Fyrstu skrefin
Námskeið á vegum þróunarverkefnis um heimspekikennslu í
Garðabæ
Þróunarhópur um heimspekilega samræðu í Garðabæ og heldur námskeið í Garðaskóla 9.-10. mars. Þar mun sænski heimspekikennarinn Liza Haglund fjalla um hlutverk heimspeki í leik- og grunnskólum og unnin verða verkefni sem henta í kennslu barna og unglinga.
Liza Haglund kennir við Södertörns Högskola í Stokkhólmi og hefur víðtæka reynslu í heimspekikennslu með börnum, unglingum og kennurum. Hún undirbýr nú stofnun skóla í Stokkhólmi þar sem heimspekileg samræða verður í lykilhlutverki í öllu starfi, sjá nánar á www.filosofiska.nu.
Námskeiðið í Garðaskóla hefst á fyrirlestri um heimspeki í skólastarfi og er hann öllum opinn. Á dagskránni er síðan verkefnavinna og samræður þátttakenda og verður sérstök áhersla lögð á vinnubrögð sem henta vel í kennslu yngri barna.
Tveir leikskólakennarar, Guðbjörg Guðjónsdóttir og Helga María Þórarinsdóttir munu segja frá reynslu sinni af heimspekikennslu í leikskólum. Einnig munu grunnskólakennarar í Garðabæ segja frá reynslu sinni af því að innleiða heimspekilega samræðu í kennsluna hjá sér.
Tími: Föstudagur 9. mars kl. 1 3-17 og laugardagur 1 0. mars kl. 9-16
Staður: Garðaskóli, Garðabæ
Þátttakendur: Allir sem eru áhugasamir um heimspekikennslu í leik- og grunnskólum eru velkomnir
Skráning: Tekið er á móti skráningum á netfangið: brynhildur@gardaskoli.is.
Skráningargjald er 2000 krónur. Sjá einnig á http://www.klifid.is/index.php?
option=com_zoo&task=item&item_id=98&Itemid=89.
Leik- og grunnskólakennarar í Garðabæ og félagar í félagi heimspekikennara greiða ekki námskeiðsgjald.
Samstarfsaðilar: Félag heimspekikennara, Sprotasjóður Mennta- og menningarmálaráðuneytis
Tími: föstudagur 9. mars kl. 13-17, laugardagur 10. mars kl. 9-16
Undirbúningsnefnd: Brynhildur Sigurðardóttir, Ingimar Waage, Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir og Jóhanna Kristín Guðmundsdóttir
Gestakennari: Liza Haglund, Södertörn Högskola, Stokkhólmi
Dagskrá
Föstudagur 9. mars:
13.00 Gestir á fyrirlestri og námskeiði boðnir velkomnir
13.15 Liza Haglund – opnunarfyrirlestur: Children’s rights to think together – philosophy for children in multiple dimension of education
14.00 Umræður um fyrirlestur Lizu Haglund
14.30 Kaffihlé
15.00 Námskeið Lizu Haglund hefst í stofu 301: The very start- An inquiry that anyone can do
17.00 Samantekt í lok dagsins
Laugardagur 10. mars:
9.00 Námskeið Lizu Haglund heldur áfram: Beyond anecdotes -What to do in order to deepen the discussions
10.30 Kaffihlé
11.00 Málstofa um heimspeki í leik- og grunnskólum (öllum opin):
Liza Haglund
Helga María Þórarinsdóttir (leikskólakennari á Akureyri)
Guðbjörg Guðjónsdóttir (leikskólakennari í Garðabæ og fyrrum leikskólastjóri í Foldaborg)
Kristjana Fjóla Sigursteinsdóttir grunnskólakennari í Garðabæ12.00 Matarhlé
12.30 Samræða um kynningar Lizu, Helgu Maríu, Guðbjargar og Kristjönu Fjólu
13.30 Námskeið Lizu Haglund heldur áfram: The meaning of meaning- practical work on ambiguous and vague concepts
14.30 Kaffihlé
14.45 Námskeið Lizu Haglund heldur áfram: Inquiry into practicalities – what are our hinders?
16.00 Námskeiðslok