Hugur – tímarit um heimspeki lýsir eftir efni í 24. árgang, 2012. Þema Hugar 2012 verður heimspeki nítjándu aldar.
Fá tímabil í sögu mannsandans hafa verið eins frjó og nítjánda öldin. Allt áhugafólk um heimspeki þekkir til helstu heimspekinga og stefna aldarinnar. Hún geymir bæði uppgjör við upplýsinguna og rætur samtímans. Þema Hugar mun snúast jafnt um einstaka heimspekinga, heimspekistefnur og tímabilið í heild sinni. Greinar sem fjalla um lítt rannsakaða heimspekinga og hugmyndir á nítjándu öld eru sérstaklega velkomnar.
Efni 24. árgangs mun þó ekki afmarkast við þemað. Jafnframt verða birtar greinar og þýðingar um margvísleg heimspekileg efni. Allar frumsamdar greinar sem birtast í Hug fara í gegnum nafnlausa ritrýni og ákvarðanir um birtingu eru teknar á grundvelli hennar. Viðmiðunarlengd greina er átta þúsund orð að hámarki. Höfundar eru hvattir til að kynna sér leiðbeiningar um frágang sem má finna á Heimspekivefnum (mappa undir fyrirsögninni FÁH/Hugur).
Skilafrestur efnis fyrir Hug 2012 er 1. apríl 2012. Efni skal senda til ritstjóra, Henrys Alexander Henryssonar, hah@hi.is. Þangað má einnig senda fyrirspurnir.