Hugur – tímarit um heimspeki lýsir eftir efni í 23. árgang, 2011. Þema Hugar 2011 verður náttúra.
Í vestrænni heimspeki hefur náttúruhugtakið komið fram í margvíslegum myndum sem má í grófum dráttum flokka í þrennt: Það sem er eðli einhvers, það sem á við ómanngert umhverfi og það sem er andstætt andlegum eða yfirnáttúrulegum eiginleikum. Þema Hugar mun snúast um allar þessar merkingar hugtaksins eins og það kemur fyrir hjá einstökum heimspekingum, í siðfræði, umhverfissiðfræði, vísindaheimspeki, heimspekilegri guðfræði, frumspeki, þekkingarfræði og fagurfræði.
Tekið er við frumsömdum greinum sem draga fram einhver (eða öll þessara andlita náttúruhugtaksins. Jafnframt verða birtar heimspekilegar greinar sem ekki falla undir þema heftisins og er tekið við slíkum greinum sem og ritdómum og íslenskum þýðingum á heimspekilegu efni. Allar frumsamdar greinar sem birtast í Hug fara í gegnum nafnlausa ritrýni og ákvarðanir um birtingu eru teknar á grundvelli hennar. Viðmiðunarlengd greina er átta þúsund orð að hámarki. Höfundar eru hvattir til að kynna sér leiðbeiningar um frágang sem má finna á Heimspekivefnum:
http://heimspeki.hi.is/?page_id=1966 (mappa undir fyrirsögninni FÁH/Hugur).
Skilafrestur efnis fyrir Hug 2011 er 15. mars 2011. Efni skal senda til ritstjóra, Henrys Alexanders Henryssonar, hah@hi.is. Þangað má jafnframt senda fyrirspurnir.