Aðalfundur Félags heimspekikennara verður haldinn laugardaginn 9. júní 2012 kl. 13.00-16.30 í Verzlunarskólanum í Reykjavík. Dagskrá hefst með námskeiði Jóhanns Björnssonar heimspekikennara í Réttarholtsskóla. Eftir kaffihlé verður síðan aðalfundur haldinn með hefðbundinni dagskrá.
Dagskrá fundarins:
13.00 Heimspekingar í hægindastólum, nokkrar æfingar í heimspeki fyrir skólastofuna, partíið og sumarbústaðinn. Jóhann Björnsson heimspekikennari í Réttarholtsskóla miðlar af reynslu og innsýn.
15.00 Kaffi
15.30 Aðalfundur
- skýrsla stjórnar
- reikningar félagsins
- skýrsla ritstjórnar
- tilllaga um fréttabréf borin undir félagsmenn
- kosningar
- önnur mál
Stjórn Félags heimspekikennara