Dagana 7. og 8. september standa Heimspekistofnun Háskóla Íslands og Edda – öndvegissetur í samstarfi við Norræn samtök kvenheimspekinga fyrir ráðstefnu í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins um femíníska heimspeki og stöðu hennar innan heimspekinnar.
Femínísk heimspeki hefur orðið að frjórri grein innan vestrænnar heimspeki á undanförnum áratugum. Hún hefur gagnrýnt kanónu heimspekinnar og grundvallarhugtök hennar um mann og veruleika. Femínísk þekkingarfræði, siðfræði, fagurfræði og frumspeki hafa getið af sér auðugri skilning á þekkingarverunni, siðaverunni, skyn- og líkamsverunni. Fortíð og nútíð heimspekinnar sem fræðigreinar birtast í nýju ljósi. Þrátt fyrir þetta er hlutfall kvenna og minnihlutahópa meðal kennara og nemenda hvað lægst í heimspeki í samanburði við aðrar greinar hugvísinda og vísinda almennt. Er skýringin sú að femínískar nálganir eru enn lítt viðurkenndar innan greinarinnar? Eða er þörf á að grafa dýpra til að skilja viðnám heimspeki gagnvart breytingum í þessu tilliti? Lykilfyrirlesarar þessarar ráðstefnu, Sally Haslanger og Linda Martín Alcoff, ásamt fleiri fyrirlesurum, hafa vakið athygli fyrir skrif sín um stofnanamenningu, innihald og stíla heimspekinnar, sem og fyrir frumkvæði í þá veru að bæta stöðu kvenna og minnihlutahópa í heimspeki.
Skipuleggjendur: Ásta Sveinsdóttir, San Francisco State University/Háskólinn á Bifröst, Eyja Margrét Brynjarsdóttir, Salvör Nordal og Sigríður Þorgeirsdóttir, Háskóla Íslands
Dagskrá:
Föstudagur 7. september | ||
11.00 – 11.45 | Ráðstefna sett Sigríður Þorgeirsdóttir og Gunnar Harðarson, Háskóla Íslands |
|
12.00 – 13.00 | Lykilfyrirlestur Sally Haslanger, Massachusetts Institute of Technology, BNA Philosophy and Critical Social Theory: Feminism and the Politics of Inquiry Málstofustjórn: Ása Kristjana Sveinsdóttir |
|
13.00 – 13.30 | Samlokur og drykkir | |
13.30 – 15.00 | Þekkingarfræði Lorraine Code, York University, Kanada Has Feminist Philosophy Changed Philosophy? The Fate and the Promise of Epimistic Responsibility Heidi Grasswick, Middlebury College, BNA Climbing Out of the Box: Feminist Epistemology as Social Epistemology Phyllis Rooney, Oakland University, BNA The Marginal Status of Feminist Philosophy: Insights from the Situation with Feminist Epistemology Málstofustjórn: Erlendur Jónsson |
|
15.00 – 15.15 | Kaffi | |
15.15 – 16.45 | Frumspeki Nancy J. Holland, Hamline University, BNA Humility and Feminist Philosophy Allison Assiter, University of the West England, Bretlandi Who’s Afraid of Metaphysics? Málstofustjórn: Salvör Nordal |
|
16.45 – 17.00 | Kaffi | |
17.00 – 18.00 | Aðferðafræði Hildur Kalman, Háskólinn í Ulmeå, Svíþjóð Has Feminist Philosophy Changed Philosophy? An Empircal or Philosophical Question? Jami Weinstein, Háskólinn í Linköping, Svíþjóð Theory Sex as a Feminist Methodology Málstofustjórn: Arnþrúður Ingólfsdóttir |
|
18.30 | Móttaka |
Laugardagur 8. september | ||
10.00 – 11.00 | Lykilfyrirlestur Linda Martin Alcoff, Hunter College and the City University of New York Graduate Center, BNA The Politics of Philosophy Málstofustjórn: Eyja Margrét Brynjarsdóttir |
|
11.00 – 11.15 | Kaffi | |
11.15 – 12.45 | Heimspekisaga Catherine Villaneuva Gardner, Hunter College and the City University of New York Graduate Center, BNA Beneath the Surface: Feminist Philosophy and Mainstream History of Philosophy Martina Reuter, Akademia Finnlands/Háskólinn í Jyväskylä The Roles of Feminist Reinterpretation in History of Philosophy Ruth Hagengruber, Háskólinn í Paderborn, Þýskalandi How the History of Women Philosophers Changes Philosophy Málstofustjórn: Erla Karlsdóttir |
|
12.45 – 13.30 | Hádegisverður | |
13.30 – 15.00 | Staðsetning og pólitík heimspekinnar Stella Sandford, Kingston University, Bretlandi The Realisation of Feminism? Feminist Critique and the Discipline of Philosophy Fiona Jenkins, Australian National University, Ástralíu (Re-)Framing What We Do Tove Pettersen, Háskólinn í Osló, Noregi Marginalizing Feminist Philosophy Málstofustjórn: Vilhjálmur Árnason |
|
15.00 – 15.15 | Kaffi | |
15.15 – 16.45 | Margbreytileiki Kim Q. Hall, Appalachian State University, BNA A Study of „Philosophical Happiness“: How the Marginal remains Marginal Sigríður Þorgeirsdóttir, Háskóli Íslands Transnational and Feminist Philosophy Málstofustjórn: Guðbjörg S. Jóhannesdóttir |
|
16.45 – 17.30 | Umræður og ráðstefnuslit Eyja Margrét Brynjarsdóttir og Salvör Nordal stýra umræðum |
|
19.00 | Ráðstefnukvöldverður |